Austurhringur um Kjöl

Austurhringur um Kjöl Hringmiðinn yfir Kjöl og austur fyrir landið opnar möguleika á heimsókn til vinsælla áfangastaða á hálendinu, svo sem svæðið vestan

Austurhringur um Kjöl

Austurhringur um Kjöl

Verð:
38.000 kr

Dalpay
Verisign
Hringmiðinn yfir Kjöl og austur fyrir landið opnar möguleika á heimsókn til vinsælla áfangastaða á hálendinu, svo sem svæðið vestan Kjalvegar á milli Hvítárness og Hveravalla, og ekki síður til Kerlingarfjalla sem bjóða uppá góða aðstöðu fyrir ferðamenn til dvalar og gönguferða um fjölskrúðugt og tignarlegt landslag.
Miðinn gildir síðan á þjóðvegi nr.eitt frá Blöndudal í Norðri austur fyrir landið og um Suðurland til baka. Eins má auðvitað fara öfugan hring og hefja ferðina á einhverjum þeim stað á leiðinni sem hverjum og einum hentar best.

Á leiðinni er farið um Varmahlíð í Skagafirði, Akureyri við Eyjafjörð, Víkurskarð, Fnjóskadal, Ljósavatnsskarð, Goðafoss, Reykjadal, Mývatn, Möðrudalsöræfi & Jökuldal á Norðurlandi. Egilsstaði, Suðurdal, Breiðdalsheiði, Breiðdal, Berufjörð, Djúpavog, Hamarsfjörð, Álftafjörð, Lón & að Höfn í Hornafirði. Þaðan um Mýrar, Suðursveit, Breiðamerkursand, Skaftafell, Skeiðarársand, Síðu, Kirkjubæjarklaustur, Vík, Skóga, Hvolsvöll, Hellu & Selfoss til Reykjavíkur.

Víða á þessari leið eru ótal tækifæri til dvalar eða annarra útúrdúra, enda hindrar rúmur gildistími hringmiðanna ekki viðdvöl eftir þörfum hvers og eins.
Áætlanir sem eiga við þennan hringmiða eru: 2/2a, F35/F35a60/60a, 9/9a, Ak-Egs-Ak, 12/12a og 12b/12C.
Gildistími hringmiða austurhrings um kjöl er 25.06 - 05.09.


UPPLÝSINGAR:

Bookmark and Share

Skrifstofa Reykjavík

Krókhálsi 12
Mánudaga - Föstudaga 09:00 - 16:30
Lokað um helgar


sterna@sterna.is
Sími: +354 551  1166

Afgreiðsla Reykjavík

BSÍ
Alla daga: 08:00 - 19:00



sterna@sterna.is
Sími: +354 551  1166

Afgreiðsla Akureyri

Hafnarstræti 77:
Mánudaga - fimmudaga: 07:30 - 16:30
Föstudaga: 07:30 - 17:00
Laugardaga og sunudaga: Lokað

sterna@sterna.is
Sími: +354 551 1166

Facebook
All rights reserverd (c) 2008-2011 | Bílar og fólk / Sterna | Tel. +354 551 1166 | sterna@sterna.is