Sterna - Bus schedule - Bílar og Fólk

Landmannalaugar-Skaftafell Friðlandið að Fjallabaki hefur löngum verið vinsælt til ferðalaga og gönguferða, enda víðfemt, fjölbreytt og litríkt landslag

Landmannalaugar-Skaftafell

Landmannalaugar-Skaftafell


Verð:
19.000 kr
Lýsing:

Friðlandið að Fjallabaki hefur löngum verið vinsælt til ferðalaga og gönguferða, enda víðfemt, fjölbreytt og litríkt landslag sem gleður augað.  Leiðin liggur um Þjórsárdal, Landmannaleið, Landmannalaugar, Eldgjá, Skaftrártungu, Klaustur og yfir Skeiðarársand að Skaftafelli.

Til baka (eða öfugt) er farið um Suðurströndina, Kirkjubæjarlaustur, Vík, Hvolsvöll, Hellu, Selfoss og til Reykjavíkur.  Auk þess má benda á leiðina inn í Þórsmörk, en þangað er hægt að komast fyrir hóflegt viðbótargjald, á sama afslætti og af verði hringmiðans. 
 
Á þessari leið allri er fjöldi áhugaverðra viðkomustaða og ef nægur tími er til viðstöðu og dvalar, þá hamlar gildistími hringmiðanna ekki rólegri og afslappaðri yfirferð.  Aðeins þarf að fylgjast með brottfarartímum áætlunarbílanna og ferðast alltaf í sömu áttina, rétt- eða rangsælis.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf