Sterna - Bus schedule - Bílar og Fólk

Austurhringur um Kjöl Hringmiðinn yfir Kjöl og austur fyrir landið opnar möguleika á heimsókn til vinsælla áfangastaða á hálendinu, svo sem svæðið vestan

Austurhringur um Kjöl

Austurhringur um Kjöl


Verð:
34.000 kr
Lýsing:

Hringmiðinn yfir Kjöl og austur fyrir landið opnar möguleika á heimsókn til vinsælla áfangastaða á hálendinu, svo sem svæðið vestan Kjalvegar á milli Hvítárness og Hveravalla, og ekki síður til Kerlingarfjalla sem bjóða uppá góða aðstöðu fyrir ferðamenn til dvalar og gönguferða um fjölskrúðugt og tignarlegt landslag.

Miðinn gildir síðan á þjóðvegi nr.eitt frá Blöndudal í Norðri austur fyrir landið og um Suðurland til baka. Eins má auðvitað fara öfugan hring og hefja ferðina á einhverjum þeim stað á leiðinni sem hverjum og einum hentar best.
 
Á leiðinni er farið um Varmahlíð í Skagafirði, Akureyri við Eyjafjörð, Víkurskarð, Fnjóskadal, Ljósavatnsskarð, Goðafoss, Reykjadal, Mývatn, Möðrudalsöræfi & Jökuldal á Norðurlandi. Egilsstaði, Suðurdal, Breiðdalsheiði, Breiðdal, Berufjörð, Djúpavog, Hamarsfjörð, Álftafjörð, Lón & að Höfn í Hornafirði. Þaðan um Mýrar, Suðursveit, Breiðamerkursand, Skaftafell, Skeiðarársand, Síðu, Kirkjubæjarklaustur, Vík, Skóga, Hvolsvöll, Hellu & Selfoss til Reykjavíkur.
 
Víða á þessari leið eru ótal tækifæri til dvalar eða annarra útúrdúra, enda hindrar rúmur gildistími hringmiðanna ekki viðdvöl eftir þörfum hvers og eins.

INFO:

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf