þriðjudagur 05.janúar 2010 - Lestrar 38
Vegagerðin hefur farið fram á það við okkur að við fækkum ferðum á milli Siglufjarðar og Sauðárkróks um tvær ferðir á viku og fari 7 ferðir í staðin fyrir 9. Á milli Selfoss og Flúða verði fækkað um fimm ferðir á viku og farnar verði 7 ferðir í stað 12 og frá Borgarnesi í Búðardal og Króksfjarðarnes um eina ferð í viku, þar verði farnar 4. ferðir í staðin fyrir 5.
Breytingar hafa þegar verið birtar en munu taka gildi 15. janúar. Hringið í 551 1166 fyrir nánari upplýsingar.
Sjá nánar í "Áætlun"









