| Hringmiðar 2009 - ferðist frjáls og óbundin með rútu ! |
|
Smellið á viðkomandi miða í vinstri dálkinum fyrir nánari upplýsingar. |
| 1. Hringmiði á þjóðvegi 1. Hringmiðinn gildir á hringveginum - þjóðvegi nr. 1! Fjöldi viðkomustaða opna möguleika á tenginu með áætlunarbílum við bæjarfélög og staði utan hringvegarins. |
| 2. Hringmiði á þjóðvegi 1 & Vestfirðir. Þessi miði gildir á þjóðvegi nr. 1 nema frá Borganesi í Brú eða öfugt. Frá þessum stöðum er farið um Borgarnes í Stykkishólm, með Baldri (innifalið í verði) yfir Breiðafjörð til Brjánslækjar, þaðan um Dynjandivog til Ísafjarðar, til Hólmavíkur og um Strandir í Brú í Hrútafirði eða öfugt. |
| 3. Snæfellsnesið og Snæfells þjóðgarður. Snæfellsnesið svíkur engann og ekki er nú langt að fara. Þessi miði er góður kostur - jafnvel í helgarferð. |
| 4. Vesturland & Vestfirðir. Tignarleg fjöll, hvort sem er á Snæfellsnesinu eða Vestfjörðum. Skemmri eða lengri ferð á þessar slóðir er góð og gefandi upplifun. Ótal möguleikar til náttúruskoðunar og gönguferða. Ferð með ferjunni Baldri yfir Breiðafjörðinn um Flatey innifalin. 5. Gullni hringurinn Þessi miði fer hinn geysivinsæla gullna hring. Farið er frá Reykjavík yfir á Þingvöll um Mosfellsheiði og þaðan í gegnum Laugarvatn. Frá Laugarvatni er svo haldið á Geysi og Gullfoss. Síðan er farið í gegnum Selfoss á leiðinni til Reykjavíkur aftur. 6. Landmannalaugar-Skaftafell |
|
Hringmiðinn í Landmanalaugar, Skaftafell og Vík. Hægt að komast í snertingu við hálendi Íslands. Njóta náttúrufegurðar helstu náttúruperlla Íslands, Landmannalauga og Skaftafells. 7. Austurhringur um KjölHringmiðinn yfir Kjöl og austur fyrir landið opnar möguleika á heimsókn til vinsælla áfangastaða á hálendinu, svo sem svæðið vestan Kjalvegar á milli Hvítárness og Hveravalla, og ekki síður til Kerlingarfjalla sem bjóða uppá góða aðstöðu fyrir ferðamenn til dvalar og gönguferða um fjölskrúðugt og tignarlegt landslag. 8. Vestmannaeyjar Hringmiði sem gildir fyrir dagsferð frá Reykjavík til Vestmannaeyja. Farið er frá Reykjavík til Bakkafjöru og með Herjólfi yfir til Heimaeyjar. Þar tekur svo við mögnuð skoðunarferð um eitt merkilegasta svæði Íslands í nú- og fortíð. Aðrir afsláttarmiðar |
|
Afsláttarmiðarnir henta vel þeim sem fara reglulega á milli sömu staðanna vegna starfs eða náms - vetur eða sumar. Afsláttarkortin henta fyrst og fremst þeim sem fara a.m.k. tvisvar á dag á milli sömu staðanna. |
Flýtilyklar









