Bílar og fólk er öflugt fyrirtæki á sviði hópferða, sérleyfisaksturs og fólksflutninga almennt með starfstöðvar í Reykjavík og á Akureyri. Fyrirtækið hefur yfir að ráða mörgum góðum bílum og þrautreyndu og traustu starfsfólki. Bílar og fólk sér alfarið um sérleyfsakstur undir nafni Sterna. Sérleyfið tekur yfir áætlunarakstur allt frá Reykjavík á vesturland, Norður að Akureyri og suðurland austur að Egilstöðum.
Bílar og fólk er eitt af öflugustu hópferðafyrirtækjum landsins með yfirráð yfir fjölda bíla í öllum stærðum. Hvert sem ferðinni er heitið og hvenær sem er gerum við tilboð í akstur hópa.

